Byggingarverkfræðingur telur áríðandi að breyta hönnun Fossvogsbrúarinnar áður en hún kemur til framkvæmda. Gert er ráð fyrir því í núverandi hönnun að hjólastígur sé á vestari hluta brúarinnar og göngustígur á þeim austari. Ellert Már telur áríðandi að gengið sé á vestari hlutanum.
Fossvogsbrúin tengir tvö stærstu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og landsins alls, Reykjavík og Kópavog. Annar endi hennar verður í Skerjafirði í Reykjavík og hinn á Kársnesinu í Kópavogi. Tillaga að breytingum á deiliskipulagi á svæðinu í kringum brúnna hafa verið sendar í auglýsingu.
„Ég er búinn að vera með þetta í kollinum frá því ég sá brúnna fyrst. Nú þegar líður að framkvæmdum varð ég að koma þessu frá mér. Þetta er mitt hjartans mál um þessar mundir og ég er náttúrulega með brúnna smá á heilanum. Allir sem ég tala við eru sama sinnis og ég,“ segir Ellert Már Jónsson, byggingaverkfræðingur, í samtali við fréttastofu.
Hann bendir á að sólin fari að skína á vesturhluta brúarinnar upp úr klukkan 14 á daginn og skuggamyndun frá handriðum, bekkjum og fleira byrjar á austari hlutanum samtímis. Hann segir að séð frá austari hluta brúarinnar muni stór hluti sjávarflatarins hverfa í brúargólf, handrið og annað og speglum sólarinnar hverfur þá nánast.
„Þar sem sólin er Íslendingum svo kær og fallegt sólarlag bræðir hjörtu okkar er ég viss um að löngun fólks til að sjá ósnortið sólarlag af brúnni yrði til þess fólk færi iðulega frá göngusvæði austan megin yfir á vesturhlið, yfir akbrautina og inn á hjólastíginn. Þetta skapar hættu og eina ráðið væri að girða af akbrautina svo enginn komist yfir nema „fuglinn fljúgandi“,“ segir Ellert.
Hönnunarkeppni fór fram um hönnun brúarinnar sem lauk í desember árið 2021. Þá var tilkynnt að verkfræðistofan Efla hefði unnið með tillögu sinni um Öldu. Brúin þverar allan voginn og er ein helsta forsenda þess að Borgarlínan gangi upp í núverandi hönnun.
Áningarstaðir við hvorn enda og á göngustíg
Gert er ráð fyrir því í núverandi hönnunartillögu að vestanmegin brúarinnar verði hjólastígur þar sem enga áningarstaði er að finna en austanmegin verði svæði fyrir gangandi og þremur áningarstöðum. Tekið er fram í tillögunni að til að koma til móts við þau sem vilja njóta útsýnis vestanmegin sé gert ráð fyrir tveimur áningarstöðum við hvorn enda brúarinnar vestanmegin. Þar er að finna bæði bekki og hjólastanda. Á milli er svo vegur til að aka ökutækjum á.
Fram kemur í tillögu um brúnna að einnig sé gert ráð fyrir fjórum áningar- og útsýnisstöðum fyrir bæði gangangi og hjólandi í landmótuninni við brúna, allir við strandlengjuna. Frá brúnni verður hægt að horfa á ýmis kennileiti eins og Bessastaði, Snæfellsjökul og Hallgrímskirkju.
Þá kemur enn fremur fram í tillögunni að lega hjólastígsins vestan megin hámarki öryggi og skjól þeirra sem hjólandi eru og verja þau fyrir austanátt, sem er ríkjandi, þar sem kantsteinar og álfasteinar standa að hluta upp fyrir brúargólfið. Í tillögunni segir að þetta sé afar mikilvægt þar sem stór hluti þeirra sem hjólandi eru setja veðuraðstæður ekki fyrir sig.
Hér að neðan má sjá mynd af vindaðstæðum á brúnni miðað við núverandi hönnun en við skýringu hennar í tillögunni segir að kantbitarnir tryggi að engar snarpar breytingar verði í vindaðstæðum eftir brúnni. Jafnvel þar sem kantbiti er lægstur, framan við álfasteina, eru talin nokkuð jákvæð skjóláhrif af honum á áningarstöðunum.
Fyrsta útboð um áramót
Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Betri samgangna er gert ráð fyrir að útboð hefjist í upphafi næsta árs og hægt verði að hefja framkvæmdir á vormánuðum ársins 2024. Fyrst verður boðin út vinna við landfyllingar á Kársnesi og við Nauthólsvík vegna brúarinnar.
Þar kemur einnig fram að gert sé ráð fyrir því að sex til níu þúsund manns muni eiga leið um brúnna daglega með almenningssamgöngum þegar Borgarlínan verður komin í fulla notkun, auk þeirra sem eru hjólandi og gangandi.
Gert er ráð fyrir að 6-9.000 manns muni eiga leið um hana með almenningssamgöngum daglega, þegar Borgarlínan verður komin í fulla notkun, auk fjölda gangandi og hjólandi. Brúin verður í miklu návígi við eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins í Nauthólsvík og Öskjuhlíð auk nýrrar byggðar og útvistarsvæða meðfram strandlengju Kópavogs.
Ellert Már segir að sem dæmi, ef fólk myndi hefja göngu á Ægisíðu við Holtsvallagötu um klukkan 14 að sumri og gangi yfir brúnna að Sky Lagoon sé það með „tæra sól frá toppi til táar“ á sér allan tímann ef brúin er spegluð. Ef núverandi hönnun yrði ofan á þá yrðir þú að krossa tvisvar akbraut og hjólastíg á þessari leið og á brúnni yrðir þú sem „skuggabaldur“ og frá Skerjafirði er ekki gengið undir brúnna eins og á Kársnesinu til að komast á gönguleiðina.
Spurður út í öryggi hjólafólks segir hann þeim gefinn of mikill gaumur í tillögunni. Gera megi ráð fyrir því að miklu fleiri verði gangandi en hjólandi og það sérstaklega ef brúin er spegluð.
„Varðandi rok og rigningu á brúnni þá er ekkert einfaldara að loka hjólaleiðinni í óveðrum með ljósastýringu og beina hjólamönnum á göngusvæðið og þeir einfaldlega leiða hjónin yfir brúnna. Brúin er falleg og stílhrein. Hún getur orðið stórkostleg ef ungir sem aldnir geta óhindrað orðið vitni af því þegar sólin speglast í haffletinum og sest að lokum í Álftanesi. Í gegnum Bessastaði þá verður hún gullmoli.“
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins vakti líka athygli á málinu á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni þar sem hún lagði fram fyrirspurn um málið.
„Núverandi hönnun gerir ráð fyrir hjólastíg á vesturhluta brúarinnar og göngustíg austan megin. Eins og hönnun Fossvogsbrúar hefur verið kynnt myndi sólin fara að skína á vesturhlið brúarinnar milli kl. 13.00 og 14.00. Þá myndast skuggar frá handriðum inn á brúnna. Göngusvæði austan megin „króast“ af og tapast þá útsýnisupplifun þeirra sem ganga yfir brúna. Þannig skerðist ásýnd sólarlagsins í handriðum, brúargólfinu og umferð Borgarlínuvagna sem gleðja myndi augað ef gönguleiðin er vestan megin á brúnni,“ segir í fyrirspurn Kolbrúnar.
Hún bendir á, eins og Ellert Már, að upplifunin yrði miklu sterkari ef leiðunum yrði víxlað og gengið væri austanmegin brúarinnar og segir það þess virði að kanna málið áður en málin ferð lengra.
Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samgangna segir ekki koma til greina að breyta hönnuninni og að hönnunin sé algerlega úthugsuð.
„Fólk getur séð sólarupprásina og brúin er ekki það breið að þú getir ekki séð sólarlagið hinum megin. Þetta eru ekki mistök að þetta sé svona. Þetta er úthugsað og hönnuðirnir hafa komist að því að það er best að hafa þetta svona. Það er búið að skoða þetta og tillagan sem við erum með er besta útfærslan.“
Heimild: Visir.is