Nýr Landspítali (NLSH), óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á innanhússfrágangi 5. og 6. hæð meðferðarkjarna sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík (sjá www.nlsh.is).
Fyrir liggur hönnun á innanhússfrágangi en verktaki mun annast hönnunarþjónustu svo sem deilihönnun eða aðra uppfærslu hönnunarþátta sem til falla.
Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum sem uppfylla skilyrði forvals gagna og er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Að loknu forvali mun verkkaupi velja fimm (5) fyrirtæki úr hópi hæfra umsækjenda til þátttöku í lokuðu útboði.
Markmið með því útboðsferli, sem hefst með þessu forvali, er að velja hæfan umsækjanda til að taka að sér framkvæmd innahússfrágangs á 5. og 6. hæð, alls um 14.000 m2. Um er að ræða legudeildir í nýjum meðferðarkjarna.
Að loknu mati á umsóknum um þátttöku verða útboðsgögn afhent 5 hæfustu umsækjendunum í samræmi við kröfur til bjóðenda í forvalsgögnum þessum.
Útboðsgögn afhent: | 16.11.2023 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 18.12.2023 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 18.12.2023 kl. 14:15 |
Verkkaupi hyggst, að loknu lokuðu útboði í kjölfar þessa forvals, gera samning um innanhússfrágang 5. og 6. hæða nýs meðferðarkjarna, með vali tilboðs í samræmi við ákvæði 79. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.