Sláturhús Arctic Fish í Bolungarvík tók nýverið í notkun nýja frárennslislausn Dystia, fyrst laxeldisfyrirtækja. Um er að ræða heildarlausn á frárennslisvanda í laxeldi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
„Með því að taka í notkun þetta nýja vatnshreinsikerfi erum við að innleiða kröfur framtíðarinnar. Allt frárennsli úr nýju vinnslunni okkar í Bolungarvík fer í gegnum kerfið og því fullhreinsað frá okkur.
Í stuttu máli hefur lausnin frá Dystia staðist allar væntingar og við hlökkum til að taka forystu á þessu sviði,“ segir Kristján Rúnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri laxavinnslu Arctic Fish.
Guðjón Ingi Guðjónsson framkvæmdastjóri Dystia er sannfærður um ágæti kerfisins og segir að líklega sé ekkert fyrirtæki á landinu, óháð starfsemi, með betri hreinsun á frárennsli en Arctic Fish.
„Kerfið framleiðir klór í lágum styrk úr sjó með rafmagni til þess að hreinsa úrganginn. Með því að framleiða klórinn á staðnum með hráefni úr nærumhverfinu, í stað þess að nota innfluttan klór, er komið í veg fyrir óþarfa kolefnisspor og hættu á umhverfisslysi í flutningi eða á staðnum.
Dystia-klórkerfið er lokað þannig að starfsfólk þarf ekki að meðhöndla efnið sjálft á neinu stigi. Efnið er því 100% vistvænt og leysist upp í náttúrunni eftir að hafa gert sitt gagn.“
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is