Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Síðubraut lokar vegna framkvæmda í Móahverfi á Akureyri

Síðubraut lokar vegna framkvæmda í Móahverfi á Akureyri

68
0
Mynd: Akureyri.is

Framkvæmdir hefjast við Síðubraut miðvikudaginn 15. nóvember og verður henni lokað milli Jaðarsíðu og Austursíðu sem sjá má á meðfylgjandi mynd.

<>

Fjarlægja þarf malbik af hluta af götunni og byggja nýtt hringtorg og setja farg á götuna. Það á eftir að skýrast hve lengi lokun Síðubrautar mun vara.

Allri umferð vinnuvéla og þungra ökutækja verður beint um stofn- og tengibrautir til að lágmarka ónæði í íbúðahverfum.

Hægt er að skrá sig á póstlista hér til að fá fréttir af framkvæmdum og gangi mála í hinu nýja Móahverfi.

Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum.

Heimild: Akureyri.is