Tvær umsóknir um framkvæmdaleyfi til efnistöku voru afgreiddar á fundi sveitastjórnar Hörgársveitar 31. október og efnistaka er þegar hafin.
Segir öllum skilyrðum uppfyllt
Axel Grettisson, oddviti sveitarstjórnar, segir að frá því leyfi til efnistöku voru felld úr gildi hafi sveitarstjórn látið meta allt upp á nýtt og því ferli hafi lokið í október. Tekið hafi verið tillit til allra athugasemda og sveitarstjórn hafi nú veitt leyfi að öllum skilyrðum uppfylltum.
Náttúrugrið kæra aftur
Það voru náttúruverndarsamtökin Náttúrugrið sem kærðu í vor, leyfi til efnistöku í Hörgá. Samtökin hafa nú lagt fram aðra kæru, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þar sem þau kæra annað þeirra framkvæmdaleyfa sem sveitarstjórn Hörgársveitar hefur afgreitt.
Snæbjörn Guðmundsson, formaður Náttúrugriða, segir kært á sömu forsendum og í vor, en samtökin kæri veitingu leyfis til efnistöku á svæði númer 9. Náttúrugriðum finnist ótækt að verið sé að róta í Hörgá, eins og gert sé við efnistöku í ánni. Það sé ófyrirleitni gagnvart náttúrunni og þau óttist að allt fari í sama far og áður.
Heimild: Ruv.is