Home Fréttir Í fréttum Vinna hafin við undir­búning varnar­garða í Svarts­engi

Vinna hafin við undir­búning varnar­garða í Svarts­engi

186
0
Kristinn Harðarson segir starfsfólki eðlilega brugðið. Það sé vel upplýst. VÍSIR/EINAR

Ummerki eftir skjálftana í nótt sjást víða. Á Grindavíkurvegi eru sprungur í malbiki sem Vegagerðin vaktaði í dag og í orkuverinu í Svartsengi eru víða sprungur. Þar er hafin vinna við undirbúning varnargarða.

<>

„Það eru komnar sprungur víða í gólf og veggi og það var greinilegt í aðkomu í morgun að þetta var töluverður skjálfti í nótt. Það voru skjáir dottnir í gólfið og komnar nýjar sprungur víða,“ segir Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku.

Þar er hafin vinna við gerð varnargarða.

„Við erum að byrja undirbúning, við að taka efni inn á svæðið til að geta verið snögg að bregðast við ef við þurfum að setja upp varnargarða. Erum að reyna að stytta viðbragðstímann eins og hægt er,“ segir Kristinn og að með þessu vonist þau til þess að geta tryggt órofna starfsemi og áframhaldandi starfsemi í virkjuninni verði eldgos.

Fjórir til sex vörubílar eru þannig keyrðir allan daginn með möl úr námu stutt frá að orkuverinu þar sem mölinni er safnað saman í hrúgu. Verði eldgos verði svo hægt að nýta hana í varnargarða eða jafnvel til að setja yfir borholur eða lagnir.

Hann segir lágmarksmönnum í orkuverinu eins og stendur. Einhverjir vinni í Reykjanesvirkjun í stað þess að vera í Svartsengi og fylgist vel með virkjuninni.

„Það var fylgst mjög vel með í nótt þegar skjálftarnir voru. Starfsemin var stöðug þrátt fyrir skjálftana og engar krítískar skemmdir á framleiðslubúnaði en það eru sprungur víða í gólf og veggi.“

Hann segir almannavarnir og Veðurstofu upplýsa þau reglulega og starfsfólk fái þær upplýsingar um leið.

„En auðvitað er þetta mjög óþægileg staða. Þessi kvikusöfnun er í næsta nágrenni og það skiljanlega hefur áhrif.“

Heimild: Visir.is