F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Garðaborg. Endurgerð húsnæðis, útboð 15927
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í niðurrif innanhúss sem og á þakvirki, fullnaðarfrágangi að utan og innan ásamt hurða- og gluggaísetningu. Núverandi bygging er hefðbundið staðsteypt hús byggt árið 1982.
Steyptir burðarveggir byggingarinnar munu halda sér eins og það er í dag. Frágangur að innan felst í uppsetningu inniveggja, hurða, loftaklæðningar, innréttinga og loftræsingu ásamt öðrum húskerfum og raf- og neysluvatnslögnum.
Garðaborg leikskóli tók til starfa árið 1983 og er á Bústaðavegi 81 í hverfi Háaleiti og Bústaðar í Reykjavík.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Einangrun og klæðning útveggja 215 m2
Endurgerð þakvirkis 400 m2
Gluggar og hurðir 28 stk.
Innveggir 350 m2
Öll tækni- og lagnakerfi hússins s.s. loftræsikerfi, vatns-, raflagnir í 380 m2 húsnæði.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:30 þann 7. nóvember 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 4. desember 2023.