Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra.
Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt frá því þegar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri opnuðu nýju Þorskafjarðarbrúna með því að klippa á borða við mikinn fögnuð viðstaddra.
Það voru hins vegar mæðgur úr Gufudal sem fyrstar fóru yfir og það á hestbaki, þær Jóhanna Ösp Einarsdóttir og dætur hennar tvær, Ásborg og Yrsa Dís Styrmisdætur.
En hvað var Sigurði Inga efst í huga á þessum degi?
„Að sjá framfarirnar raungerast, áhuga fólksins og gleðina sem skín hér úr hverju auga. Það er auðvitað bara.. – samgöngur skipta svo miklu máli fyrir fólkið í landinu,“ sagði ráðherrann.
„Þetta var bara gleðidagur. Ég var víst með einhverjar yfirlýsingar við einhvern fréttamann hérna í vor og sagðist ætla að ríða þarna yfir. Maður verður að standa við það sem maður segir,“ sagði Jóhanna Ösp, sem auk þess að vera varaoddviti Reykhólahrepps er jafnframt formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga.
„Þetta þýðir sjö klukkutímar á viku sem fjölskyldumeðlimir í minni fjölskyldu eru minna í bíl,“ nefndi Jóhanna sem dæmi um áhrif brúarinnar á nærsamfélagið.
„Þetta er afrek. Þetta er fallegt mannvirki og vel gert og tekur tillit til allra umhverfissjónarmiða. Þannig að ég held að þetta sé bara eitt af því sem við getum verið gríðarlega stolt af,“ sagði Sigurður Ingi en Suðurverk var aðalverktaki.
Þetta 2,2 milljarða króna mannvirki er fyrsta stórvirkið sem lokið er við eftir að deilu um Teigsskóg lauk, deilu sem hélt vegagerð á svæðinu í herkví í tvo áratugi.
„Ég prófaði að fara þar í gegnum fyrr í dag og ég veit að það munu allir verða stoltir af þeirri framkvæmd og glaðir að fara þar í gegn,“ sagði ráðherrann.
Áætla má að hátt í tvöhundruð manns hafi mætt í brúarvígsluna, margir langt að komnir. Sjá mátti íbúa bæði af sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum og sumir óku alla leið úr Reykjavík. Og ökumenn flautuðu af gleði þegar þeir fengu að aka yfir.
„Þetta er einstakur dagur. Þetta er alveg yndislegt að fá að upplifa þetta að það sé búið að opna Þorskafjarðarbrú og að þetta verkefni sé bara hreinlega komið á laggirnar,“ sagði Ingibjörg Birna sveitarstjóri.
„Náttúrlega hefur þetta mikla þýðingu gagnvart íbúum okkar. Við höfum sagt það áður; að koma fólkinu og börnunum niður af fjallvegunum – Þorskafjarðarbrú er bara hluti af því verki – en við erum að sjá fram á að þetta er að klárast. Þetta er að verða að veruleika,“ sagði sveitarstjóri Reykhólahrepps.
En það er ekki allt eins og að var stefnt. Ríkisstjórnin hafði áður lofað því að ljúka vegagerð um Gufudalssveit árið 2024, það er á næsta ári, og það mun ekki nást. Eftir er að brúa Djúpafjörð og Gufufjörð. En hvenær lýkur þá verkinu?
„Á næsta ári verða þrjár brýr boðnar út og það mun taka að hámarki þrjú til fjögur ár að klára allt saman. Þannig að í síðasta lagi verður allt búið ´27. Vonandi ´26,“ svaraði innviðaráðherra.
„En það fer auðvitað eftir því hversu hratt og vel gengur. Hér erum við að sjá framkvæmdir sem hafa klárast átta mánuðum á undan áætlun. Þannig að, já, ég lít mjög björtum augum á það sem eftir er og að það klárist hratt og vel,“ sagði Sigurður Ingi.
Heimild: Visir.is