Byggja þarf allt að fimm þúsund íbúðir árlega næstu árin á sama tíma og uppbygging hefur dregist verulega saman. Fjöldi nýrra, fullbúinna íbúða sem standa auðar hefur sexfaldast milli ára. Verktaki segir algjöra kúvendingu hafa orðið í bransanum á árinu.
Í nýrri greiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um íbúðaþörf á landinu er teiknuð upp nokkuð dökk sviðsmynd; hröð íbúafjölgun kalli á byggingu allt að 5000 íbúða árlega næstu árin. Á sama tíma hefur verulega dregið úr framkvæmdum.
Á tímabilinu mars til september í fyrra hófust framkvæmdir við 2.575 íbúðir á landsvísu. Á sama tímabili í ár hófst uppbygging 768 íbúða. Ríflega 70 prósent samdráttur.
Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks, sem er með um sjö hundruð íbúðir í byggingu um þessar mundir, segir hækkandi vexti og aukinn byggingakostnað sliga verktaka.
„Allt þýðir þetta að framleiðslukostnaður á lítilli íbúð hefur hækkað alveg gríðarlega,“ segir Gylfi.
Þannig að staðan hefur snarversnað á síðustu misserum?
„Já, bara á þessu ári. Það er algjör kúvending.“
Auðvitað ekki að fara að gerast
Bygging fimm þúsund íbúða á ári næstu árin verði að teljast óraunhæf.
„Ég held við höfum einu sinni náð að byggja þrjú þúsund íbúðir á síðustu tíu árum. Við eigum ekki lóðir, við eigum ekki skipulag, þetta er auðvitað ekki að fara að gerast,“ segir Gylfi.
Þá geta verktakar ekki endilega treyst á að íbúðirnar seljist, þar sem skammtímaeftirspurn hefur dregist saman samhliða vaxtahækkunum. Sala á nýjum íbúðum virðist því hafa dregist saman. Í september í fyrra voru nýjar, fullbúnar og óseldar íbúðir 131. Talan var komin upp í 238 í mars á þessu ári og nú stendur hún í 777. Þetta er sexföldun milli ára, samkvæmt greiningu HMS.
Gylfi telur að verkefni næstu eins til tveggja ára verði kláruð.
„Svo spái ég því að komi gat.“
Hálfgert stopp?
„Kannski ekki hálfgert stopp en við erum allavega alls ekki að fara að vinna upp í þá þörf sem við erum að spá að sé fyrir hendi.“
Heimild: Visir.is