Fjarðabyggðarhafnir óska eftir tilboði í útboðsverkið „Fjarðabyggðarhafnir: Lenging Strandarbryggju. Steypt Staurabryggja.“
Verkið felst meðal annars í að:
- Reka niður 68 stálstaura.
- Koma fyrir 17 stk. forsteyptum burðarbitum, 17 stk. forsteyptum kantbitum og 170 holplötum.
- Steypa 71 metra langan landvegg og 210 m² akkerisplötu.
- Steypa 975 m² ásteypulag á holplötur.
- Koma fyrir þybbum, pollum og kanttré
- Leggja ídráttarrör fyrir raflagnir og vatnslagnir. Tengja vatn inn í hús.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. júlí 2024.
Útboðsgögn verða afhent þegar þess er óskað á tölvupóstfangið sigurdur@portum.is frá og með fimmtudeginum 5. október 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt á sama tölvupóstfang fyrir kl. 14:00 á þriðjudeginum 24. október 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.