Home Fréttir Í fréttum Annar hluti Efri-Jökuldalsvegar í formlegt útboð

Annar hluti Efri-Jökuldalsvegar í formlegt útboð

87
0
Mynd: Austurfrett.is

Síðla sumars 2022 var lokið við uppbyggingu fyrsta veghluta af þremur alls á Jökuldalsvegi frá Hringveginum og að hinum vinsæla ferðamannastað Stuðlagili í Efri-Jökudal. Nú er komið að útboði á öðrum hlutanum.

<>

Vegagerðin auglýsti formlegt útboð fyrir skömmu á þessum öðrum hluta sem nær frá Arnórsstöðum og að Langagerði fyrir þá sem til þekkja eða alls um 4,6 kílómetra kafla. Útboðsgögn verða opnuð á þriðjudag í næstu viku.

Ráð er fyrir gert að vinna hefjist strax með vorinu og ljúki eigi síðar en í byrjun júlí 2025. Skal endurbyggja núverandi veg á öllum vegkaflanum og lagfæra plön og hæðarlegu vegarins á tilteknum köflum. Að því loknu verður búið að endurnýja og betrumbæta tvo þriðju leiðarinnar að langvinsælasta ferðamannastað Austurlands.

Ekkert liggur fyrir um hvenær þriðji og síðasti áfanginn alla leið að Stuðlagili sjálfu verður boðinn út en þar um að ræða kringum sex til sjö kílómetra langan veg sem verður þá síðasti spottinn að vinsælum útsýnispallinum við bæinn Grund.

Heimild: Austurfrett.is