Vegagerðin óskar eftir tilboðum í blettanir með klæðingu á Vestursvæði og Norðursvæði á árinu 2016.
Helstu magntölur:
- Blettun (k1) útlögn á Vestursvæði 160.000 m2
- Blettun (k1) útlögn á Norðursvæði 161.200 m2
Verki skal að fullu lokið 1. september 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. mars 2016.
Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.