Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið “Varmárskóli – endurbætur á lóð, 1.áfangi”.
Um er að ræða endurbætur á skólalóð, upphitaðann sparkvöll, stærð 18x33m, stálrimlagirðingu umhverfis völlinn samtals 118m og um 400m2 hellulögn.
Koma skal fyrir 3 niðurföllum og snjóbræðslu sem þekur 710 m2. Uppsetning á 4 ljósastaurum ásamt búnaði fyrir ljósastýringu.
Helstu verkþættir í verki, sem þetta útboð nær til, eru eftirfarandi:
- Jarðvinna – snjóbræðsla.
- Fótboltavöllur með gervigrasi
- Uppsetning á stálrimlagirðingu.
- Uppsetning ljósastólpa.
- Yfirborðsfrágangur.
Verkinu skal að fullu lokið samræmi við ákvæði útboðsgagna þann 29. júlí 2024 og í nánu samráði við verkkaupa.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt í útboðskerfinu Útboð – Mosfellsbær – Varmárskóli, endurbætur á lóð, áfangi 1 | www.verkis.is frá og með föstudeginum 8. september 2023. til þeirra sem þess óska.
Tilboðum skal skilað rafrænt í sama útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 5. október 2023