Verkið er jarðvinna vegna viðbyggingar við leikskólann Óskaland, Hveragerði.
Verktaki skal jarðvegsskipta fyrir húsi, sjá um jarðvinnu vegna lagna og setja upp öryggisgirðingu umhverfis vinnusvæðið, samkvæmt teikningum og verklýsingu.
Helstu magntölur eru:
Girðing 120 m
Gröftur 3.300 m³
Fyllingar 3.300 m³
Lagnaskurðir 300 m
Verkið skal framkvæma samkvæmt útboðsgögnum og öðrum þeim gögnum sem þar er vísað til. Innifalið í tilboði skal vera allt sem þarf til að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum. Tilboð skal gert á þar til gerðu tilboðsblaði og sundurliðað í tilboðsskrá.
Útboðsgögn eru aðgengileg á heimasíðu Hveragerðisbæjar. Tilboðum skal skila inn til bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar í síðasta lagi föstudaginn 25. ágúst kl. 11. Tengiliður er Höskuldur Þorbjarnarson: hoskuldur@hveragerdi.is
Hér má finna útboðslýsingu, verklýsingu, tilboðskrá og tilboðsblað
Hér má finna útboðsteikningu
Heimild:Hveragerðisbær