Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingu akbrauta með sprautuplasti, árin 2016-2018. Um er að ræða merking miðlína, deililína og kantlína á Suðursvæði.
Helstu magntölur, miðað við þrjú ár, eru:
Flutningur vinnuflokks | 1.500 | km |
Miðlínur | 1.890.000 | m |
Deililínur | 147.900 | m |
Kantlínur | 450.000 | m |
Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 29. febrúar 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.