Home Fréttir Í fréttum 24.07.2023 Leikskólinn Klambrar – Endurgerð lóðar, 2.áfangi

24.07.2023 Leikskólinn Klambrar – Endurgerð lóðar, 2.áfangi

127
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Leikskólinn Klambrar – Endurgerð lóðar, 2.áfangi, útboð nr. 15884

 

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Klambra við Háteigsveg 33, 105 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er syðri hluti lóðarinnar en teygir sig til norð-austurs og er um það bil 1200 m². Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Framkvæmdatími – verklok: 
Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 31.október 2023.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 10. júlí 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 24. júlí 2023.