F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sæbraut – Kleppsmýrarvegur Umferðaröryggisúrbætur, útboð nr. 15883
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Gera skal breytingar á gatnamótum Sæbrautar, Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs þar sem gönguþveranir yfir framhjáhlaup eru upphækkaðar og gerðar að gangbrautum ásamt því að eyjar eru stækkaðar. Einnig er önnur vinstribeygjuakreinin á Kleppsmýrarvegi inn á Sæbraut lögð af og miðeyja á Kleppsmýrarvegi breikkuð og gróður settur í hana.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 11. júlí 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 26. júlí 2023.