F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Snjóhreinsun húsagatna í Reykjavík 2023-2024, útboð nr. 15872
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í snjóhreinsun húsagatna í Reykjavík. Um er að ræða allar húsagötur í Reykjavík en útboðinu er skipt upp í fimm hluta.
Helstu magntölur eru:
- Hluti 1
- Þjónustuflokkur 3: Ruðningslengd: 69 km
- Hluti 2
- Þjónustuflokkur 3: Ruðningslengd: 72 km
- Hluti 3
- Þjónustuflokkur 3: Ruðningslengd: 60 km
- Hluti 4
- Þjónustuflokkur 3: Ruðningslengd: 66 km
- Hluti 5
- Þjónustuflokkur 3: Ruðningslengd: 63 km
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 29. júní 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 10. ágúst 2023.