F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2023-2024 Útboð I, útboð nr. 15870
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík. Um er að ræða götur vestan Elliðaáa, í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal og Háaleiti-Bústöðum
Helstu magntölur eru:
- Þjónustuflokkur 1: Götulengd: 91 km Ruðningslengd: 168 km
- Þjónustuflokkur 2: Götulengd: 50 km Ruðningslengd: 95 km
- Þjónustuflokkur 3: Götulengd: 81 km Ruðningslengd: 144 km
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 29. júní 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 2. ágúst 2023.