Mun færri byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsnæði í Bandaríkjunum og Evrópu voru gefin út í ár sem gæti haldið húsnæðisverði í hámarki til lengri tíma.
Hörð barátta helstu seðlabanka heimsins við verðbólgu gæti skilað verðbólgu á húsnæðismarkaði á komandi árum.
Stýrivaxtahækkanir hjá bæði evrópska og bandaríska seðlabankanum til að keyra niður verðbólguna hefur ekki bara hækkað húsnæðislán einstaklinga og fyrirtækja heldur hægt verulega á byggingariðnaðinum í heimsálfunum tveimur.
Samkvæmt The Wall Street Journal er verið að ýta vandanum á undan sér, sem gæti valdið verðbólgu á húsnæðismarkaði til lengdar.
Bandaríkin og evrusvæðið gætu því þurft að undirbúa sig undir að húsnæðis- og leiguverð muni halda áfram á hækka á komandi árum.
Stýrivextirnir á báðum stöðum hafa hægt á nýbyggingum og voru gefin úr 21,1% færri byggingarleyfi fyrir einbýlishús í Bandaríkjunum í apríl, í samburði við sama tímabil í fyrra.
Á sama tíma fóru 22,3% færri byggingarverkefni í gang á sama tímabili.
Byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsnæði féll um 13% á evrusvæðinu á fjórða ársfjórðungi 2022 í samburði við árið á undan.
Fjölmörg byggingarfyrirtæki hafa sett verkefni á ís og búast má við því að þau verði þar á meðan vextir haldast háir.
Heimild: Vb.is