Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið „Urriðaholt- upphækkuð gatnamót.“
Verkið felst í að fjarlægja núverandi malbik á völdum gatnamótum og gera upphækkaða hellulögn, ýmist með eða án merktra gönguleiða.
Helstu magntölur eru:
- Upprif á malbiki 4.300 m2
- Hellulögn 4.400 m2
- Uppsetning umferðarskilta 72 stk.
Lokaskiladagur verksins er 27. október 2023.
Útboðsgögn verða afhent með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvefnum: https://www.utbodsgatt.is/gardabaer/urridaholt-upphaekkud-gatnamot frá og með föstudeginum 16.júní 2023 kl.17:00
Tilboð skulu hafa borist rafrænt á útboðsvefnum, eigi síðar en þriðjudaginn 4. júlí 2023 kl. 11:30.
Þau verða opnuð á sama tíma á skrifstofu Strendings ehf verkfræðiþjónustu Dalshraun 1a. 3.hæð, Hafnarfirði að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.