Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samningsundirskrift vegna uppsteypu bílakjallara undir Sóleyjartorgi

Samningsundirskrift vegna uppsteypu bílakjallara undir Sóleyjartorgi

211
0
Frá samningsundirritun: Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands , Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk ehf og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland)

Í dag undirrituðu heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á bílakjallara undir Sóleyjartorgi við hliðina á meðferðarkjarnanum.

<>

Auk þess vottuðu samninginn þær Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland)

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra:
„Það er ánægjulegt að ennþá bætist við byggingar sem eru á framkvæmdastigi í uppbyggingu við nýjan Landspítala. Þessi viðbót verður mikilvæg í heildarsamhengi því það skiptir öllu að öll þjónusta við sjúklinga og gesti sé á heimsmælikvarða og með góðri aðkomu þá er hægt að tryggja betur góða umgjörð. Þessi áfangi er hluti þeirrar vegferðar  að allar byggingar hér á svæðinu myndi eina heild,“.

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf:
„Enn einn áfanginn í uppbyggingunni við Hringbraut. Fljótlega verður boðin út uppsteypan á nær 18.000 fermetra rannsóknahúsi svo og styttist í að uppsteypu meðferðarkjarnans ljúki,“.

Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk ehf
„Við hjá ÞG verk erum sátt við að geta tekist á við samninginn og verkefni sem þetta. Við munum einhenda okkur í verkið og allt okkar starfsfólk á staðnum mun verða einhuga í að uppsteypan gangi vel. Við ljúkum þessu á næsta ári eins og áætlanir segja til um,“.

Nánar um uppsteypu bílakjallara:
Bílakjallarinn verður á tveimur hæðum undir Sóleyjartorgi ásamt tengigöngum sunnan Landspítala. Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut.

Bílakjallarinn verður staðsettur milli meðferðarkjarna og fyrirhugaðrar byggingar dag-, göngu- og legudeildar Landspítalans austan við torgið, sem er sunnan megin við Gamla Landspítalann. Verða þar um 180 bílastæði fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða að koma í heimsóknir. Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 m2.

 

Upphæð samnings er:

Kr. 1.381.693.926 (91,4 % af kostnaðaráætlun)

Tölurnar eru án vsk. og á verðlagi apríl 2023

Heimild: NLSH.is