Consensa fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps óskar eftir tilboðum í uppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar á Borg samkvæmt skilmálum útboðsgagna.
Viðbyggingin tengist íþróttahúsi og sundlaugarbyggingu að vestanverðu sem verður á tveimur hæðum með heildarflatarmál um 670m².
Á 1.hæð viðbyggingar mun vera líkamsræktaraðstaða, sjúkraþjálfun ásamt stoðrýmum en á 2.hæð verða skrifstofurými og stoðrými. Gert er ráð fyrir að hvor hæð fyrir sig geti starfað sem sjálfstæð rekstrareining með aðgengi um sameiginlegan inngang, stigahús og lyftu á milli hæða.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum á vefslóðinni:
https://tendsign.is/doc.aspx?UniqueId=afbbcuaxyb&GoTo=Tender
Útboðsgögn afhent: | 11.06.2023 kl. 10:00 |
Skilafrestur | 11.07.2023 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 11.07.2023 kl. 12:01 |
Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn á útboðsvefnum og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.