Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sauðárkrókur, endurbygging Efri garðs 2023:
Helstu magntölur:
- Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
- Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum.
- Jarðvinna, fylling og þjöppun.
- Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og
stögum. - Koma fyrir 59 bakþilsplötum ásamt stagbita við bakþil.
- Steypa um 89 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginu 12. júní 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. júní 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.