Ríkiskaup hefur fyrir hönd Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna og Heilbrigðisráðuneytisins birt forvalsauglýsingu vegna byggingar og útleigu húsnæðis fyrir heilsugæslu í Innri Njarðvík.
Leitað er að aðilum, sem geta tekið að sér að hanna og byggja heilsugæslu á einni hæð og leigja til FSRE til 25 ára. Verkefnið er samstarfsverkefni (Public Private Partnerships (PPP)).
Staðsetning nýrrar heilsugæslu er við Stapabraut 2 í Innri Njarðvík.
Við hvetjum áhugasama að skoða allar nánari upplýsingar í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast hér.
Heimild: Rikiskaup.is