Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í utanhússmálun og múrviðgerðir á Síðuskóla og Giljaskóla og utanhúsmálun á leikskólunum Hólmasól og Naustatjörn á Akureyri.
Framkvæmdatíminn er frá 6. júní til 10. ágúst 2016.
Útboðsgögn verða send á rafrænu formi til þeirra sem þess óska, frá og með 22. febrúar 2016.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið dora@akureyri.is og óskið eftir gögnum.
Boðið verður upp á vettvangsskoðun á verkstöðum eftir hádegi þriðjudaginn 1. mars.
Tilboðum skal skila til Fasteigna Akureyrarbæjar Geislagötu 9, fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 10. mars 2016 og verða tilboð opnuð á sama stað og tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.