Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í að fjarlægja gervigras af æfingarvelli á Torfnesi og jafna undirlag undir nýtt gervigras.
Helstu verkþættir eru eftirfarandi:
- Fjarlægja núverandi gervigras, sand og gúmmí
- Jöfnunarlag á svæði norðan æfingarvallar
- Niðurlögn á núverandi gervigrasi
Helstu dagsetningar
- Verðfyrirspurn auglýst: 26. maí 2023
- Fyrirspurnarfrestur: Til 9. júní 2023
- Svarfrestur: Eigi síðar en 3 dögum fyrir skilafrest tilboða
- Opnunartími tilboða: 15. júní kl. 11:00
- Upphaf framkvæmdatíma 8. ágúst 2023
- Lok framkvæmdatíma 15. september 2023
Útboðsgögn verða á afhent í tölvupósti, frá og með 26. maí 2023. Vinsamlega sendið tölvupóst á jbh@verkis.is og óskið eftir gögnum.
Tilboð verða opnuð í fundarsal bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 15. júní kl. 11:00.