Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Maímánuður hefur verið hagstæður í uppsteypu meðferðarkjarna

Maímánuður hefur verið hagstæður í uppsteypu meðferðarkjarna

180
0
Mynd: NLSH ohf.

Maímánuður hefur verið hagstæður í uppsteypunni og verkið gengið vel áfram.

<>

„Uppsteypa meðferðarkjarna gengur vel, þó svo að í kringum páskahátíðina var nokkuð skert framleiðsla á svæðinu, þar sem flestir voru í verðskulduðu fríi.

Vinna við efstu hæð stangar tvö er hafin, en helstu verkþættir við uppsteypuna eru sem fyrr við mótauppslátt, járnabendingu, eftirspennu og uppsetningu stálvirkis. Góður gangur hefur verið í uppsetningu stálvirkis í millibyggingum og meðfram því í uppsteypu millibygginganna.

Vinna við tengiganga er í fullum gangi og við bílastæða- og tæknihús, þar sem steyptur var síðasti áfangi botnplötunnar í byrjun maí.

Næst á dagskrá í framkvæmdum á svæðinu er uppsteypa bílakjallara austan við síhækkandi meðferðarkjarna,“ segir Árni Kristjánsson staðarverkfræðingur Nýs Landspítala.

Heimild: NLSH ohf.