Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025.
Í aðalatriðum felst verkið í eftirfarandi:
Útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í göngunum og bregðast þarf strax við.
Umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau, t.d. vegna úttekta og/eða viðhalds.
Þátttöku og aðstoð vegna funda og æfinga viðbragðsaðila.
Reglubundnu eftirliti og ástandsgreiningum.
Viðhaldsvinnu á búnaði.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 22. maí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 120. júní 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.