Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 5,2 km Landvegar frá Þjófafossvegi að Landmannaleið, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
- Efnisvinnsla 21.015 m3
- Fylling 4.690 m3
- Fláafleygar 1.885 m3
- Neðra burðarlag 9.120 m3
- Efra burðarlag 14.895 m3
- Tvöföld klæðing 36.345 m2
- Frágangur fláa 38.035 m2
Verkinu skal að lokið með tvöfaldri klæðingu eigi síðar en 1. ágúst 2016 og að fullu 15. ágúst 2016.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 23. febrúar 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.