Framkvæmdir við hringveginn um Kjalarnes hafa nú staðið yfir í um þrjú ár. Fyrsti áfangi verksins verður opnaður í næsta mánuði. Heildarverkefnið snýr að því að breikka hringveginn frá Kollafirði að Hvalfjarðarvegi, en fyrsti áfanginn nær frá Kollafirði að Grundarhverfi. Enn er ekki ljóst hvenær annar áfangi verður boðinn út. Þetta kemur fram í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn mbl.is
Fyrsti áfangi verkefnisins er að sögn Vegagerðarinnar vel heppnaður þrátt fyrir ýmis flækjustig sem upp hafa komið. Erfitt reyndist að afla aðfanga vegna covid og vegna mikils iðnaðar á svæðinu skapaðist flækjustig þegar í ljós kom fjöldi lagna. Opnun vegarins er þar af leiðandi ári á eftir áætlun, en upphaflega var ráðgert að ljúka framkvæmdum 2022.
Á kaflanum sem opna á í byrjun júní hefur verið unnið að því að breikka hringveginn í 2+2 veg frá Varmhólum við Kollafjörð langleiðina að Grundarhverfi, með hringtorgi við Móa, undirgöngum við Varmhóla og Saltvík auk hliðarvega, ásamt reiðstígum og stígum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Að öllum líkindum verður einhver frágagnsvinna og vinna við hliðarvegi eftir þó vegurinn opni í júní, þær framkvæmdir klárast þó í sumar.
Enn á eftir að bjóða út annan áfanga framkvæmdarinnar en þó er ljóst að sá áfangi snýr að breikkun hringvegar í 2+1 veg frá Vallá að Hvalfjarðarvegi með tveimur hringtorgum. Annars vegar við Brautarholtsveg og hins vegar við Hvalfjarðarveg. Þá á einnig að lengja undirgöng undir Vallá, koma fyrir nýjum undirgöngum við Esjuskála og Arnarhamar sem og lengingu steypts stokks yfir Blikadalsá, ásamt hliðarvegum og stígum.
Verkið í heild sinni er samstarfsverkefni Vegargerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.
Heimild: Mbl.is