Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í verkið „Fyrirstöðugarður við Norðurtanga 2023.” Um er að ræða gerð um 80 metra fyrirstöðugarðs, norðan Fjarðarstrætis.
Helstu magntölur:
- Grjót og kjarni úr námu samtals um 6100 m3.
- Upptekt og endurröðun um 500 m3.
Helstu dagsetningar:
Verðfyrirspurn auglýst | 27. apríl |
Lokadagur fyrirspurna og athugasemda | 3. maí |
Svarfrestur | 4. maí |
Skilafrestur | 5. maí kl: 14:00 |
Verklok | 30. júní |
Gildistími tilboðs | 4 vikur |
Verktrygging | 10% |
Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti frá og með 27. apríl 2023. Vinsamlegast sendið tölvupóst á hilmarl@isafjordur.is og óskið eftir gögnum.