Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, veitti fyrirtækjunum JÁVERK og Gefn í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Sjálandsskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins.
Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á JÁVERK sem handhafa Kuðungsins 2022 kemur fram að JÁVERK hafi verið fyrsta umhverfisvottaða byggingarfyrirtækið á Íslandi, en fyrirtækið varð í fyrra Svansleyfishafi.
JÁVERK hefur í starfi sínu innleitt nýjungar sem sýna samfélagslega ábyrgð. Þannig lífsferilsgreina þau öll verk og reikna innbyggt kolefni bygginga og orkunýtingu í Svansvottuðum verkefnum.
Um 35% af losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu má rekja til byggingariðnaðarins og segir dómnefnd framlag JÁVERK til umhverfismála því mikilvægt.
Rík áhersla sem fyrirtækið leggi á fræðslu starfsfólks sé ekki síður lofsverð. Starfsfólk JÁVERK hlýtur m.a. þjálfun í efnisflokkun og þá fá verkstjórar þjálfun í vottunum og grunnumhverfisfræðslu. Fræðslan hefur haft jákvæð áhrif og aukið umhverfisvitund starfsmanna og eru undirverktakar í stórum stíl byrjaðir að óska eftir sambærilegri þjálfun.
Guðlaugur Þór, ráðherra, segir að það sé ánægjulegt að upplifa þá miklu vitundarvakningu sem orðið hefur á undanförnum árum í umhverfis- og loftslagsmálum, sem séu ein brýnustu mál samtímans.
„Þessi vitundarvakning endurspeglast meðal annars í mikilli grósku í umhverfismálum sem nú er innan margra fyrirtækja og stofnana landsins og er ein af ástæðum þess Kuðungurinn er nú veittur í tveimur flokkum, í flokki stærri og minni fyrirtækja og stofna,“ segir Guðlaugur Þór.
„Það er ekki síður gleðiefni að verða vitni að þeirri grósku sem á sér stað umhverfisstarfi skóla og hvernig unga fólkið á þátt í jákvæðum breytingum í umhverfismálum sem ná út í nærsamfélag þeirra.“
Heimild: Sunnlenska.is