F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Útboð 15792 Hlemmur og nágrenni 3. áfangi: Mjölnisholt – Gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir, útboð nr. 15792
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Framkvæmdir fela í sér endurnýjun götulagna, gatnagerðar og yfirborðsfrágangs í Mjölnisholti.
Helstu verkþættir:
-
- Upprif og förgun á hlut af af malbiki og kantsteini núverandi götu
- Losun á klöpp í lagnasvæðum stofnlagna
- Uppgreftri og jarðvegsskiptum
- Fullnaðarfrágangur fyllinga undir götu og gangstéttar þar sem við á
- Fullnaðarfrágangur fráveitu og vatnsveitu
- Fullnaðarfrágangur hellulagnar og kantsteina
- Fullnaðarfrágangur blágrænna beða
- Endurnýjun götulýsingu
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 25. apríl 2023.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 11. maí 2023.