Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í þjónustu iðnmeistara um viðhald, viðbætur og endurnýjun á fasteignum í eigu Kópavogsbæjar.
Heimilt er að bjóða í einstaka hluta útboðsins :
- Málaraiðn
- Pípulögn
- Rafiðn
Bjóðendur skulu uppfylla allar lögboðnar kröfur til að starfa við iðn sína.
Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign.
Bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign fyrir kl.13:00 þriðjudaginn 9. maí 2023.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.