Home Fréttir Í fréttum 02.05.2023 Viðhald malarvega á Suðursvæði 2023-2025, Þjónustustöð í Vík, vegheflun, austur

02.05.2023 Viðhald malarvega á Suðursvæði 2023-2025, Þjónustustöð í Vík, vegheflun, austur

113
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út vegheflun og snjómokstur á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Vík, austur, fyrir árin 2023 til 2025.

<>

Helstu magntölur á ári eru áætlaðar:

  •    Vegheflun:  495 km
  •    Snjómokstur með veghefli: 200 km

Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2025.  Heimild er til framlengingar samnings um tvö ár með samþykki beggja aðila.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningarfyrir útboðsvefinn TendSign