Home Fréttir Störf Starf sviðsstjóra Framkvæmda- og veitusviðs

Starf sviðsstjóra Framkvæmda- og veitusviðs

121
0
Bláskógabyggð

Bláskógabyggð varð sveitarfélag 9. júní 2002 en þá sameinuðust Biskupstungnahreppur, Laugardalshreppur og Þingvallahreppur. Íbúar eru alls 980.  Bláskógabyggð er mjög landstórt og víðfemt sveitarfélag.  Öflugt félagslíf er í sveitarfélaginu.  Hefð er fyrir miklu skólasamfélagi á Laugarvatni, en þar eru öll skólastig; leikskóli, grunnskóli, menntaskóli og háskóli.  Ferðaþjónusta er mjög stór atvinnugrein í Bláskógabyggð og matvælaframleiðsla mikil.  Menning er á háu stigi um allt sveitarfélagið og það skartar fjölförnustu ferðamannastöðum landsins; Þingvöllum, Laugarvatni, Geysi, Gullfossi og Skálholti.  Sjá nánar á heimasíðunni:  www.blaskogabyggd.is.

<>

 

Sviðsstjóri Framkvæmda- og veitusviðs

 

Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir starf sviðsstjóra Framkvæmda- og veitusviðs laust til umsóknar. Sviðsstjóri á samstarf við alla starfsmenn og stjórnendur sveitarfélagsins og einnig eru mikil samskipti við íbúana.   Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra í öllum störfum sínum og ákvörðunum.  Bláskógabyggð leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi og við hvetjum jafnt konur sem karla að sækja um starfið.

 

Meginverkefni:

  • Umsjón og ábyrgð á rekstri Framkvæmda- og veitusviðs sem m.a. er rekstur þjónustumiðstöðvarinnar í Reykholti, Eignarsjóðs, fráveitu og leiguíbúða. Einnig er umsjón með rekstri Bláskógaveitu í samstarfi við veitustjóra Bláskógaveitu
  • Ábyrgð á stjórnsýslulegri úrvinnslu og gagnaskilum innan verksviðs Framkvæmda- og veitusviðs, sem samþykktir, reglugerðir og lög kveða á um
  • Dagleg samskipti við starfsmenn og viðskiptavini Bláskógabyggðar
  • Starfsmannahald
  • Gerð fjárhagsáætlana fyrir Framkvæmda- og veitusvið í samstarfi við veitustjóra, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sveitarstjóra
  • Umsjón með viðhaldi mannvirkja og eigna sveitarfélagsins
  • Ábyrgð og eftirlit með öryggismálum

 

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu, t.d. viðskipta- og/eða rekstrarhagfræði. Tæknimenntun og reynsla af sambærilegu starfi er styrkur
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í störfum
  • Afar góðir samskiptahæfileikar
  • Góð tölvukunnátta og reynsla í vinnslu bókhalds og reikningskerfa
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Reynsla í stjórnun og mannaforráði
  • Reynsla og þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga er æskileg

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður forstöðumanns Framkvæmda- og veitusviðs er sveitarstjóri.

Umsóknum skal skila inn til skrifstofu Bláskógabyggðar fyrir 26. febrúar 2016, en hún er staðsett í Aratungu, Reykholti, 801 Selfoss.

Upp­lýsingar veitir Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri (897-0890), eða Helgi Kjartansson, oddviti sveitarstjórnar (898-1552). Sími skrifstofu Bláskógabyggðar er 480-3000.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið.