Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala (LSH, kt. 500300-2130), standa fyrir útboði vegna kaupa á nýrri lyftu.
Lyftan gengur milli 8 hæða í stigahúsi A-álmu sjúkrahúss Landspítala í Fossvogi við Háaleitisbraut 175 í Reykjavík.
Bjóðandi skal útvega, setja upp, tengja, prófa og ganga frá að fullu, nýrri víradrifinni sjúkra-, vöru- og fólkslyftu og fjarlægja núverandi lyftu í A-álmu sjúkrahússins í Fossvogi.
Útboðsgögn afhent: | 29.03.2023 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 28.04.2023 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 28.04.2023 kl. 13:00 |
Nánari upplýsingar eru í útboðsgögnum sem eru aðgengileg af Tendsign útboðskerfinu.