Home Fréttir Í fréttum 25.04.2023 Grassláttur á stofnanalóðum í Reykjavík 2023-2024

25.04.2023 Grassláttur á stofnanalóðum í Reykjavík 2023-2024

52
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Grassláttur á stofnanalóðum í Reykjavík 2023-2024, EES útboð nr. 15790

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Um er að ræða grasslátt á stofnanalóðum, þ.e. skóla- og leikskólalóðum, í vestur- og austurhluta Reykjavíkur. Verkið nær til tveggja ára, þ.e. 2023 og 2024. Verktími er frá 19. maí til 20. ágúst 2023 og 2024.

Helstu magntölur: 

Útboðssvæði vestur: 103.688 m2

Útboðssvæði austur: 168.043 m2.

 

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00, föstudaginn 24. mars 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 25. apríl 2023.