Home Fréttir Í fréttum Nýjar lóðir í Skógarhverfi 5 og 3A lausar til umsóknar á Akranesi

Nýjar lóðir í Skógarhverfi 5 og 3A lausar til umsóknar á Akranesi

487
0
Mynd: Akranes.is

Akraneskaupstaður auglýsir nýjar lóðir lausar til umsóknar við Skógarlund og Tjarnarskóga. Allar upplýsingar er að finna á www.300akranes.is m.a. deiliskipulag og skipulagsskilmála, mæliblöð og áætluð gjöld.

<>

Úthlutunaraðferð er mismunandi, eftir því hvort um er að ræða lóðir fyrir einbýli eða lóðir fyrir raðhús og fjölbýli.

LÓÐIR FYRIR EINBÝLISHÚS:

Tjarnarskógar (5. áfangi) – Sex lóðir. Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar í nóvember 2023.

Skógarlundur (3A. áfangi) – Þrjár lóðir sem eru byggingarhæfar í dag.

Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda reglur Akraneskaupstaðar . Séu umsækjendur um ákveðna lóð fleiri en einn verður dregið um úthlutun hennar. Sérstakur úthlutunarfundur verður í bæjarráði 11. maí næstkomandi.

Umsækjendur sækja um lóðir í gegnum www.300akranes.is. Við val á ákveðinni lóð á kortinu, birtast upplýsingar um hana, s.s. lóðarstærð, nýtingarhlutfall, hámarks byggingarmagn o.fl. Til að sækja um tiltekna lóð er ýtt á hnappinn ,,Smelltu hér til þess að sækja um lóð”, sem opnar innskráningu með rafrænni auðkenningu inn á forskráð umsóknareyðublað í íbúagátt Akraneskaupstaðar. Þar er lokið við umsókn um lóðina.

Vakin er athygli á því að afrit af kvittun fyrir greiðslu umsækjanda frá reikningi hans á umsóknargjaldi þarf að fylgja með umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 19. apríl 2023.

LÓÐIR FYRIR RAÐHÚS OG FJÖLBÝLISHÚS:

Tjarnarskógar (5. áfangi) – Ein raðhúsalóð og þrjár fjölbýlishúsalóðir. Áætlað er lóðirnar verði byggingarhæfar í nóvember 2023.

Úthlutun lóðanna er með útboðsfyrirkomulagi. Sá bjóðandi sem býður hæsta verð í byggingarrétt viðkomandi lóðar, fær hana úthlutaða. Við val á ákveðinni lóð á kortinu, birtast upplýsingar um hana, s.s. lóðarstærð, nýtingarhlutfall, hámarks byggingarmagn o.fl. Til að sækja um tiltekna lóð er ýtt á hnappinn ,,Smellið hér til að senda inn tilboð”, sem opnar fyrir innskráningu (og stofnun aðgangs) að útboðsvef Akraneskaupstaðar (https://akranes.ajoursystem.net/.) þar sem útboðsgögn fyrir lóðirnar er að finna.

Tilboðum með umbeðnum gögnum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 11. apríl 2023. Við skil á umsókn berst staðfestingarpóstur.

Greiðsluákvæði er að finna í útboðsgögnum.

Allar upplýsingar er að finna á www.300akranes.is.

Heimild: Akranes.is