Verkið felur í sér framkvæmdir í tengslum við lögn nýrrar 1000 mm gufulagnar milli skiljustöðvar 4 við Hverahlíð og skiljustöðvar 2 í Hellisskarði. Í stuttu máli felast framkvæmdir vegna þessa í eftirfarandi:
a. Hverahlíðarlögn II. Ný DN 1000 gufuaðveita, einnig kölluð Gufuaðveita 42, frá enda DN1000 lagnar norðan við skiljur í skiljustöð 4 og að skiljustöð 2 í Hellisskarði, ásamt tengingum inn á núverandi gufuaðveitur við skiljustöð 4 og skiljustöð 2. Lengd lagnar er um 4,5 km.
b. Skiljustöð 4 í Hverahlíð. Uppsetning á nýrri gufuskilju í skiljustöð 4 og tenging hennar við gufukistu, skiljuvatnslögn og nýja gufuaðveitulögn.. Niðurrif á bráðabirgðatengingum og tengingum við eldri gufuskilju og tenging hennar við nýja gufuaðveitulögn. Smíði og uppsetning á skiljuskýli við nýja skilju
c. Safnæðastofn 37 í Hverahlíð . Nýr safnæðastofn (37) frá teig 36 (B3) og tenging við gufukistu í skiljustöð 4 og umtenging á núverandi safnæðastofni 36. Lengd á nýjum stofni 37 er um 115 m.
d. Holutengingar í Hverahlíð: Tenging á einni nýrri vinnsluholu og umtenging á einni safnæð á teig 36 (B3) við nýjan safnæðastofn á teignum.
e. Skiljustöð 2 í Hellisskarði. Lenging núverandi skiljustöðvarhúss um 6 m (eitt rammabil) ásamt tilheyrandi húskerfum auk uppsetningu tveggja gufustjórnloka og tengingu þeirra við gufuaðveitu 14 utan við hús.
Verkið felur í sér alla nauðsynlega jarðvinnu, pípulagnavinnu, raflagnavinnu og byggingarvinnu. Verkkaupi leggur til megnið af efni til pípulagna, m.a. allar stállagnir DN250 og stærri.