Verkið felst í að setja gangstétt, upphækkaða gangbraut, færa strætóstöð, setja miðeyjur og endurnýja gatnalýsingu.
Helstu magntölur:
- Gröftur fyrir stíg 370 m³
- Fylling 465 m³
- Mulningur 600 m2
- Kantsteinn 350 m
- Hellulögn 570 m²
- Uppsetning ljósastólpa 25 stk.
- Umerðarmerki 11 stk.
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2023.
Útboðsgögn verða afhent í gegnum netfangið mos@mos.is frá og með þriðjudeginum 28. febrúar 2023. Tilboðum ásamt umbeðnum fylgigögnum skulu berast verkkaupa rafrænt á tölvupóstfangið mos@mos.is eða í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar Þverholti 2, 2 hæð fyrir kl. 11:00 þann 15. mars 2023, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim sem þess óska.