Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Endurnýjun leikskólalóðar – Reykjakot
Verkið felst í að endurnýja að hluta leikskólalóð m.t.t. yfirborðs frágangs og breytingum á leiktækja úrvali á leikskólalóðinni. Leikskólalóðinni er skipt upp í 3 hólf þar sem möguleiki er á því fyrir verktaka að vinna hvern áfanga út fyrir sig í samráði við verkkaupa.
Helstu magntölur:
Gröftur 156 m3
Grúsfylling með aðkeyrðri grús 105 m3
Jöfnunarlag undir fallvarnarefni og gervigras 105 m3
Upptaka á yfirborðsefnum 313 m²
Upptaka á leiktækjum 6 stk
Trépallur 135 m²
Jarðvegsdúkur 68 m
Regnvatnslagnir 12 m
Ræsislagnir 68 m
Niðurföll 1 stk
Tenging við eldri lagnir 2 stk
Hellulögn 131 m2
Gervigras og fallvörn undir leiktæki 272 m²
Gúmmíhellur 160 m2
Grasþökur 295 m2
Uppsetning leiktækja (verkkaupi útvegar ný tæki) 9 stk
Jarðstrengir (í skurði og ídráttarrör) 70 m
Ljósastólpar (uppsetning) 3 stk
Verkinu skal að fullu lokið 31. ágúst 2023 í samræmi við ákvæði útboðsgagna.
Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef VSÓ https://vso.ajoursystem.net/ frá og með miðvikudeginum 22. febrúar 2023. Tilboðum skal skila gegnum útboðsvefinn https://vso.ajoursystem.net/ eigi síðar en kl:14:00 miðvikudaginn 8. mars 2023.
Ekki verður haldinn opnunarfundur en niðurstöður verða sendar bjóðendum og birtar á heimasíðu Mosfellsbæjar.
Athygli bjóðenda er vakin á því að til þess að fá tilkynningar sendar með sjálfvirkum hætti frá vefnum um viðbótargögn, svör við fyrirspurnum o.s.frv. er nauðsynlegt að bjóðendur smelli á hnappinn „Taka þátt í útboði“ inni á útboðsvefnum.
Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum má nálgast á vefsíðunni https://help.ajoursystem.com/is/astopic/tender_is/ eða með því að senda póst á utbod@vso.is og óska eftir aðstoð.