Landeldi hf. stefnir að því að stækka landeldisstöð sína í Ölfusi þannig að þar verði unnt að framleiða 52 þúsund tonn af laxi á ári. Eru þetta mestu áform um landeldi sem uppi eru hér á landi. Áður voru áætlanir Samherja um 40 þúsund tonna stöð á Reykjanesi stærstar.
Landeldi hf. hefur hafið eldi í fyrsta áfanga stöðvarinnar og er að ljúka umhverfismatsferli fyrir næstu tvo áfanga sem gera fyrirtækinu kleift að framleiða 28 þúsund tonn á ári.
Landeldi er komið með 500 þúsund laxa í sjö sjótanka í fyrsta hluta stöðvarinnar. Þeir stærstu eru um tvö kíló að þyngd.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Landeldis, segir að fyrsta slátrun verði í apríl, tilraunaslátrun, en regluleg slátrun hefjist með haustinu. Stefnt er að því að full framleiðsla verði á næsta ári, 8.500 tonn.
Heimild: Mbl.is