Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi heildarverk: “Gatnagerð við Dalveg 30 Kópavogi”.
Lýsing á útboði:
- Gatnagerð: gerð T-gatnamóta þar sem gera á nýja beygjurein í aðdraganda gatnamótanna ásamt miðeyjum í götu. Auk allrar jarðvinnu og yfirborðsfrágangs er innifalið í verkinu gerð jarðvegsmanar á um 140 m löngum kafla meðfram götunni.
- Stígur: stígagerð þar sem stígur meðfram Dalvegi verður endurgerður í nýrri legu á um 260 m kafla.
- Hljóðgirðingar: gerð hljóðgirðinga úr timbri. Samtals lengd girðinga er um 90 m.
- Götulýsing: grafa þarf fyrir strengjum og setja upp lýsingu gatna og stíga samkvæmt teikningum og verklýsingu.
- Fjarskiptalagnir: færsla á núverandi ljósleiðarastreng samkvæmt teikningum og verklýsingu.
Bjóðendur skili inn tilboði rafrænt inn í TendSign útboðskerfið fyrir kl.11:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign útboðskerfinu og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.