Búið er að rýma meirihluta hæða í húsnæði Landsvirkjunnar við Háaleitisbraut vegna myglu sem fannst í húsnæðinu. Rýma þurfti sjöundu hæð í janúar en nú hafa fjórar hæðir bæst í hópinn.
Þriðja, fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda hæð standa nú tómar. Meirihluti starfsmanna í byggingunni hefur þurft að færa sig í aðra aðstöðu.
„Við erum ennþá í hluta af húsæðinu,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. „Við erum enn í kjallara, jarðhæð, annari hæð og áttundu. Við erum með fjórar hæðir en rýmdum fimm.“
Hluti farinn í Grósku og á Hafnartorg
Rýma þurfti sjöundu hæð svipstundis þegar mygla fannst þar og starfsfólk hefur ýmist þurft að færa sig í aðra aðstöðu. Nú er búið að færa hluta starfsmannahópsins í skrifstofurými í Grósku og á Hafnartorgi. „Svo er kannski hálft hundrað ennþá þarna á Háalteitisbrautinni.“
Ekki er víst hvort rýma þurfi hinar hæðirnar á næstu dögum. „Við hugsum um heilsufar starfsmanna fyrst og fremst og tökum svo stöðuna eftir það.“
Heimild: Mbl.is