Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
Grunnskólinn í Hveragerði – Viðbygging áfangi 3
Verkið felst í byggingu viðbyggingar við Grunnskólann í Hveragerði. Viðbyggingin verður staðsett vestur af núverandi skóla við Skólamörk 6, 810 Hveragerði.
Byggingin er staðsteypt á tveimur hæðum ásamt lagnakjallara, um 1120m2 brúttó stærð gólfflatar.
Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu byggingarinnar og fullnaðarfrágangi að utan og innan ásamt lóðafrágangi.
Verkkaupi mun á verktíma leggja áherslu á vandaða umgengni um framkvæmdasvæðið
Verklok eru 15.08.2024
Nokkrar magntölur eru eftirfarandi:
- Losun á klöpp 760m3
- Uppgrafið efni 2.160m3
- Fyllingar 1.600m3
- Mótasmíði 3.140m2
- Steinsteypa 510m3
- Bendistál 55.800kg
- Utanhúss klæðning 130m2
- Þakfrágangur
- Viðsnúið þak 155 m2
- Uppstólað þak 180 m2
- Timburþak yfir sal 340 m2
- Dúklögð gólf 680m2
- Frárennslislagnir 760m
- Gólfhitalagnir 4.120m
- Snjóbræðslulagnir 1.050m
- Vatnsúðakerfi 970m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 15.02.2023. Senda skal beiðni um útboðsgögn á netfangið thordur.kristjansson@efla.is og gefa upp nafn bjóðanda, kennitölu, heimilisfang, síma og netfang.
Tilboðum skal skila til bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði, fyrir kl. 14:00, miðvikudaginn 15.03.2023 þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.