Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið: Hellnahraun 3. áfangi – B hluti.
Um er að ræða iðnaðarhverfi vestan við Krísuvíkurveg og sunnan við Hellnahraun 2. áfanga, þar sem framkvæmdir hófust árið 2007 en lognuðust útaf í hruninu 2008.
Í verkinu felst að halda áfram uppbyggingu í hverfinu. Þ.e. klára gatnagerð, fráveitu og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafmagn og fjarskiptalagnir.
Helstu stærðir og mangtölur fyrir hverfið eru eftirfarandi:
- Lengd gatna 4.700 m
- Uppúrtekt 5.500 m3
- Fyllingar 30.000 m3
- Malbik 60.000 m2
- Fráveitulagnir 1.800 m
- Neysluvatnslagnir 2.200 m
- Skurðir veitna 4.700 m
Verklok eru 1. nóvember 2023.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðsvef VSB verkfræðistofu (https://vsb.ajoursystem.net/tender) frá og með 01. febrúar.
Tilboð verða opnuð rafrænt mánudaginn 20. febrúar 2023.