Isavia ohf óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja turna (Mars 1 og Mars 2), tengibrú við tengiturn Mars 1 og bráðabirgðatengingu við Mars 2.
Turnarnir munu þjóna aðalbyggingu SLN18 á Keflavíkurflugvelli og tengjast landgöngubrúm sem þjóna tveimur hliðunum hvor um sig. Mars 1 er 3 hæðir og er um það bil 643m2 að meðtalinni tengibrú.
Mars 2 stækkunin sem er austur af Mars 1 er einnig 3 hæðir og er um það bil 700m2 með bráðabirgðatengingu.
Útboðsgögn afhent: | 27.01.2023 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 27.02.2023 kl. 09:00 |
Opnun tilboða: | 27.02.2023 kl. 09:00 |