Veitur áætla að endurnýjun á stórri kaldavatnslögn sem fór í sundur í Hvassaleiti í september í fyrra muni kosta um 350 milljónir. Þetta kemur fram í fjárfestingaáætlun félagsins, en farið var yfir nokkur stærri verkefni ársins á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í vikun.
Lagnabilið sem verður endurnýjað á árinu er um 700 metra langt og nær frá Háaleitisbraut að Kringlumýrarbraut. Jafnframt verður framkvæmdin nýtt til þess að fóðra fráveitulögn á sama kafla.
Áætla Veitur að framkvæmdin muni taka lungann úr árinu þar sem um mjög umfangsmikla framkvæmd er að ræða. Unnið verði að því hörðum höndum að koma lögninni aftur í rekstur fyrir næsta vetur.
Lögnin er 80 cm kaldavatnslögn og þegar hún fór í sundur flæddi vatn um nærliggjandi svæði og meðal annars inn í nærliggjandi bílskúra. Þurfti tryggingafélag Veitna meðal annars að greiða tugi milljóna í bætur vegna tjóns á bifreiðum og innanstokksmunum.
Í ársfjórðungsuppgjöri Orkuveitunnar í fyrra kom fram að líklegt væri að nokkrar samverkandi ástæður væru fyrir því að lögnin gaf sig. Segir þar að líklegast sé að orsakir fyrir rofinu séu ófullnægjandi efnisgæði í röri eða galli sem hafi komið fram í því.
Einnig sé mögulegt að breytingar í umhverfi hafi leitt til þess að lögnin rofnaði og er tiltekið að jarðhræringar sem hafa átt sér stað á Reykjanesi undanfarið gætu hafa átt þátt í að lögnin fór í sundur. Hafnaði fyrirtækið hins vegar alveg að um mistök eða vanrækslu væri að ræða.
Heimild: Mbl.is